Um Hreyfiland
Hreyfiland
er fjölskyldu- og barnvæn heilsurækt.
Í Hreyfilandi eru börnin í fyrirrúmi. Við leggjum mikla áherslu á að börnin njóti sín hjá okkur, hvort sem það er sjálft í leikfimi eða í leikfimi með mömmu. Við einblínum á að öryggi barnanna sé sem mest og viljum einnig að börnin hrífist af litríku og spennandi umhverfi og líði vel í því umhverfi sem Hreyfiland hefur upp á að bjóða.
Við í Hreyfilandi viljum gera vel við allar fjölskyldur
sem eru á námskeiðum hjá okkur og veitum því
afslátt ef fleiri en einn úr fjölskyldunni vill taka
þátt í námskeiðum hjá okkur.
Við í Hreyfilandi trúum því að:
Nýfætt barn er eitt það undursamlegasta, stórfenglegasta og fallegasta sem náttúran hefur skapað okkur. Umhverfi barnanna sem þau alast upp í hafa mikil áhrif á það hvernig þeim vegnar í framtíðinni. Rannsóknir hafa sýnt fram á að það leikur enginn vafi á því að fyrstu ár ævinnar og þá sérstaklega fyrstu þrjú árin eru sérstaklega mikilvægur þáttur í því að móta framtíð einstaklingsins.
Rannsóknir hafa sýnt fram á að hægra heilahvelið hefur ótrúlega eiginleika, eins og óbrigðult sjónminni og eiginleiki til þess að leggja á minnið miklar upplýsingar á mjög stuttum tíma. Mikilvægt er að leggja áherslu á og örva þessa eiginleika hægra heilahvelsins mjög snemma á æviskeiðinu vegna þess að hann fer hverfandi eftir því sem barnið eldist. Það reynist mjög erfitt að örva og nýta þessa eiginleika eftir 6 ára aldur.
Flestir kennarar ungabarna trúa því að öll börn séu fædd með miklar gáfur. Það er okkar hlutverk að hlúa að þeim á markvissan hátt fyrstu ár ævinnar. Því ef ekki er vel að gáð munu þessar meðfæddu gáfur hægt og hægt hverfa og verða óþarfar. Reynsla nýfæddra barna getur haft langvarandi áhrif á persónuleika og hegðun þeirra í framtíðinni. Vanræksla við meðvitaða örvun heilastarfseminnar á fyrstu þrem árum ævinnar geta haft neikvæð áhrif á gáfur einstaklingsins.