Þjálfunarkerfi
EINBEITINGARLEYSI?
Eru sum börn of óþroskuð til að takast á
við skólastarf á fyrstu árum skyldunáms?
Hvað verðum við að gera?
Við ræðum:
• þroska barna í beinu samhengi við þá
örvun sem þau fá
• Virkni stjórnunar á virkni heilabarkarins hjá
börnum
• mismunandi gerðir og birtingamyndir athyglisbrests
• Einkenni
• Aðgerðir til að greina vandamálið
• Lausnir og árangur
ÓKEYPIS fyrirlestur og umræður fyrir leikskóla- og grunnskólakennara verður haldinn mánudaginn 26. maí. Nánari upplýsingar má finna í simann 8680863 hjá Krisztinu
Fyrirlesturinn fer fram á ensku.
Fyrirlesari er Katalin Lakatos
PhD. Hreyfiþroskasérfræðingur.
Um BHRG
________________________________________________________
Fyrirhugað er að Hreyfiland standi fyrir námskeiði
fyrir fagfólk, þ.e.a.s. leikskólakennara, íþróttakennara,
sjúkraþjálfa, iðjuþjálfa eða
aðra sem standa að umönnun leikskólabarna. Námskeiðið
er 180 klst. og hefst í haust 2008 ef þátttakendur
eru 15 eða fleiri. Innihald námskeiðsins er að kenna
fagfólki þjálfunarkerfi sem stuðlar að bættri
heilsu, einbeitingu og styrk leikskólabarna.
Námskeiðið
verður kennt á ensku, kennarinn Katalin Lakatos PhD, sjúkraþjálfi
og hreyfiþroskasérfræðingur, hefur þróað
og búið til þetta þjálfunarkerfi fyrir
leikskólabörn. Á námskeiðinu verður
fagfólki kennt að meta þroska heilbrigðra 3ja til
7 ára barna á ýmsa vegu. Í framhaldi verður
þátttakendum í námskeiðinu kennt að
nota æfingakerfið sem stuðlar að bættum þroska
og aukinni náms- og félagshæfni. Markmið námskeiðsins
er að fagfólk geti nýtt sér það í
starfi sínu og eflt þannig skólastarfið.
Námskeiðið fer fram í þremur lotum og verður
kennt í viku í senn. Að námskeiði loknu
munu þátttakendur fá í hendur æfingabók
á íslensku fyrir heilt ár og alþjóðlegt
prófskírteini frá HRG-PSMT skólanum.
______________________________________________________________
Kynningardagur var haldinn 18. febrúar 2007 fyrir180 klst. námskeið sem haldið var fyrir Leikskólakennara, íþróttakennara, sjúkraþjálfa, iðjuþjálfa og aðra sem koma að umönnun barna á leikskólaaldri.
Mikilvægi hreyfingar, möguleikar hreyfiþróunar í bernsku
Fyrirlesari: Katalin Lakatos PhD, sjúkraþjálfari og hreyfiþroskasérfræðingur.
8.30–9.00 Hreyfimenntun í leikskólum á Íslandi í dag, mikilvægi, fyrirbyggjandi ráðstafanir
9.00–9.20 Kynning á Hreyfilandi, markmið þess, reynsla og árangur á Íslandi undanfarin þrjú ár – Krisztina G. Agueda framkvæmdastjóri Hreyfilands
9.30–11.00 Kynning á dr. Katalin Lakatos, kynning á HRG stofnuninni (kvikmynd á ensku)
11.00–11.15 Kaffihlé
11.15–11.45 Kynning og skilgreining á hreyfingu og hreyfikennslu
- hvatning, gagnvirkni
- hlutverk taugakerfisins í líkamshreyfingum
- skilgreining á hreyfingum eftir hlutverkum þeirra
- umfang, könnunarniðurstöður og sjónarmið
atvinnufólks sem vinnur með líkamshreyfingar
- heilsuþáttur hreyfingar
- heilsugreining út frá líkamshreyfingum
11.45–12.30 Hádegisverðarhlé
12.30–14.00 Mismunandi greiningar á hreyfingum, hreyfingagreining á kvikmynd (um 15. mínútur).
14.00–15.15 Tengsl milli seinþroska í hreyfingum og seinþroska í skólanámi, möguleiki til örvunar hæfileika hjá heilbrigðum og eðlilega þroskuðum 3-7 ára börnum
15.15–15.30 Kaffihlé
15.30–16.30 Hópþjálfunarmeðferð líffræðilega seinþroska 3-7 ára barna (innskot HRG og PSMT kvikmynda)
16.45–17.30 Menntagrunnur og tæki til að nota PSMT aðferðina, hvernig á að nálgast hana og kenningarlegur bakgrunnur hennar. Möguleikar á framhaldsnámi á Íslandi.