Snillingafimi
Þær mæla með HreyfilandiMyndir
Snillingafimi er æfingar fyrir ungabörn frá 3 – 12 mánaða
Mæðra- og vinkvennahópar velkomnir, hægt að panta 1 eða 2 tíma í Snillingafimi með jafn gömul börn í hóp, á fimmtudögum hjá Krisztínu. 10 eða fleiri í hóp.
Verð er 1000 kr/barn/ tíma
_________________________________________________
Fyrstu ár barnsins skipta miklu máli fyrir viðgang þess og þroska. Þó að náttúran sjái til þess að barnið vaxi og dafni má gera margt til þess að barninu fari hraðar og árángursríkara fram.
Þegar þroski barns er metinn er einkum litið til sjö
þátta.
Þeir eru:
Í Hreyfilandi er sérstök snillingafimi fyrir ungabörn. Þar sem tekið er tillit til þessara þátta. Þar fá foreldrar leiðbeiningar um hvernig þeir geta örvað þá sjö greindarþætti sem barnið fær í vöggugjöf, þroska þess og heilbrigði. Foreldrar læra æfingar og fá leiðbeiningar um hvernig er hægt að örva skynfæri barnsins og andlegan og líkamlegan þroska þess.
Það er mjög fjölbreytilegt, skemmtilegt og notalegt
umhverfi í Hreyfilandi fyrir ungabörn. Við notum mikinn
söng, leiki, góða tónlist, falleg leikföng
og litrík áhöld.
Tíminn er 35-40 mín.