Mæðrafimi
Þær mæla með HreyfilandiMyndir
Hreyfiland
Mæðrafimi er einstök leikfimi fyrir mæður og
börn þeirra allt frá 6 vikna aldri.
_______________________________________________________
Mæðrafimi er fyrir mæður barna frá 6 vikna
aldri. Í þessum tímum eru gerðar léttar
og mjúkar æfingar sem hjálpa líkamanum að
jafna sig eftir fæðinguna og byggja upp orku og þol.
Við notum þolfimitónlist í upphitun og eftir
hana er leikin tónlist sem er sérstaklega valin með
ungbörnin í huga. Tímarnir eru þrisvar í
viku
Meðganga reynir mjög á líkamann og því
nauðsynlegt að huga að honum og heilsu okkar eftir barnsburð.
Mæðrafimi er ætluð sem notaleg og góð
stund fyrir móður og barn. Á meðan móðirin
æfir sig og leikur barnið sér í hrífandi
og skemmtilegu umhverfi inni í salnum hjá móðurinni,
eða er við hlið hennar.
Leikfimin er uppbyggð sérstaklega með það í
huga að þú hefur nýlega gengið með barn,
ert með barn á brjósti og þarft að losna
við það sem eftir er og jafna þig á heilbrigðan
og heilsusamlegan hátt. Móðirin æfir sig á
mjög áhrifaríkan hátt í 45mínútur,
teygun og slökkun í 15 mínútur og æfir
svo barnið að því loknu í 15 mínútur
( snillingafimi).
Snillingafimi.
Þegar mæður hafa lokið æfingum sínum
er sérstök leikfimi fyrir börnin. Þar fá
mæður leiðbeiningar um það hvernig þær
geta örvað þroska og heilbrigði barnsins. Móðirin
fær leiðbeiningar um það hvernig er hægt að
örva skynfæri barnsins og andlegan og líkamlegan þroska
þess.
Það sem er sérstakt við þetta námskeið
er að barnið þitt getur verið hjá þér
allan tímann og þess vegna tekið þátt
í æfingum þínum. Þú truflar engan
þó þú þurfir að sinna þörfum
barnsins því það höfum við allar sameiginlegt.
Þar að auki er tónlistin notaleg til þess að
börnin geti verið hjá okkur.
Innifalið í námskeið er:
Æfingar 3x í víku
Snillingafimi námskeið
Brúsi
Meðganga
reynir mjög á líkamann og því nauðsynlegt
að huga að honum og heilsu okkar eftir barnsburð.
Mömmuleikfimin er ætluð sem notaleg og góð stund fyrir móður og barn. Á meðan móðirin æfir sig og leikur barnið sér í hrífandi og skemmtilegu umhverfi inni í salnum hjá móðurinni, eða er við hlið hennar.
Leikfimin er uppbyggð sérstaklega með það í huga að þú hefur nýlega gengið með barn, ert með barn á brjósti og þarft að losna við það sem eftir er og jafna þig á heilbrigðan og heilsusamlegan hátt. Móðirin æfir sig á mjög áhrifaríkan hátt í 45 mínútur og æfir svo barnið að því loknu í 15 mínútur.
Sjáið nánar Snillingafimi.
Verð
6 vikna námskeið 14.400 ikr