Hreyfifimi

Þær mæla með HreyfilandiMyndir

Hreyfifimi er fyrir börn á aldrinum 1–3 ára

Hreyfiland er með starfsemi sinni í fimleikadeild Stjörnunni í Ásgarði , Garðabær.

Hreyfifimi "1" fyrir börn 1-2 ára verður kennt á laugardögum kl: 9:00-9:45

Hreyfifmi "2" fyrir börn 2-3 ára kl: 10:00-10:45

Í þessum tímum kennum við þeim með leik að hafa stjórn á hreyfingum sínum.

Fyrstu ár barnsins skipta miklu máli fyrir viðgang þess og þroska. Þó að náttúran sjái til þess að barnið vaxi og dafni má gera margt til þess að barninu fari hraðar og árángursríkara fram.

Þegar þroski barns er metinn er einkum litið til sjö þátta.

Þeir eru:

  • Tilfinningagreind
  • Skynjun
  • Hreyfigeta
  • Leikni við lausnir
  • Athyglisgáfa
  • Skilningur
  • Hygmyndaflug og sköpunargáfa

Í Hreyfilandi er sérstök hreyfifimi fyrir börn frá 1–3 ára. Þar sem tekið er tillit til þessara þátta. Þar fá foreldrar leiðbeiningar um hvernig þeir geta örvað þá sjö greindarþætti sem barnið fær í vöggugjöf, þroska þess og heilbrigði. Foreldrar læra æfingar og fá leiðbeiningar um hvernig er hægt að örva skynfæri barnsins og andlegan og líkamlegan þroska þess.

Í Hreyfilandi eru kennarar sem vita hvað þarf til þess að barnið þitt þroskist og dafni eðlilega og sjá til þess að líkama barnsins þíns líði eins vel og mögulegt er.

Það er skemmtilegt að vera í Hreyfilandi, því við höfum nóg af litríkum og spennandi áhöldum, góðri tónlist og ýmsu öðru sem á eftir að hrífa barnið þitt.

Verð

 

 

| Hreyfiland | hreyfiland@hreyfiland.is |