Grunnþjálfunarfimi
Þær mæla með HreyfilandiMyndir
Grunnþjálfunarfimi er fyrir börn
frá 3–6 ára
Í þessum tímum leggjum við áherslu á iljar, bak og hryggsúlu , bætt jafnvægisskyn og samhæfingu hreyfinga.
Námskeiðið byggir á BDE (Basic Development Education, nánar tiltekið Grunnþjálfun) kennsluaðferð sem búin var til út frá 15 ára rannsókn.
Delacatos sýndi með rannsóknum sínum fram á mikilvægi þess að örva skilningarvit barnsins á sem fjölbreytilegastan hátt. Hann sýndi fram á að með reglulegum æfingum er hægt að taka fyrr eftir vandamálum sem kunna að skjóta upp kollinum. Þá er einnig fyrr hægt að grípa í taumana og beita viðeigandi meðferð.
Rannsóknir
hans sýndu fram á að byrja þurfi að þroska
taugakerfi heilans svo barnið getið tekist á við
að læra. Einnig kom þar fram að hreyfimeðferð
getur haft góð áhrif á lestur og skrift. Í
Hreyfilandi eru kennarar sem vita hvað þarf til þess
að barnið þitt þroskist og dafni eðlilega og
sjá til þess að líkama barnsins þíns
líði eins vel og mögulegt er.
Börn þurfa skipulagða og holla hreyfingu, þar
sem ákveðnir líkamshlutar eru æfðir sérstaklega
eins og bak, iljar, jafnvægi og samhæfing hreyfinga.
Það er einnig mikilvægt fyrir börn að fá
nægilega áreynslu fyrir hjartað þannig að
það standi sig á lífsleiðinni. Þess
vegna er mikilvægt að börn reyni á líkama
sinn a.m.k. 1–2 svar í viku með æfingum sem eru
sérstaklega ætlaðar til þess.
Í Hreyfilandi eru kennarar sem vita hvað þarf til þess að barnið þitt þroskist og dafni eðlilega og sjá til þess að barninu þínu líði vel á líkama og sál.
Það er skemmtilegt að vera í Hreyfilandi, því við höfum nóg af litríkum og spennandi áhöldum, góðri tónlist og ýmsu öðru sem á eftir að hrífa barnið þitt.