Bumbufimi
Þær mæla með HreyfilandiMyndir
Fyrir barnshafandi konur er fyrir konur sem komnar eru 12 vikur eða
lengra á meðgöngu sinni.
Hver tími er 45 – 55 mín.
Það er alltaf mikilvægt að hugsa um heilsuna, en
á meðgöngu er það enn nauðsynlegra. Við
erum nefnilega ekki einungis að hugsa um okkar eigin heilsu heldur
einnig litla einstaklinginn sem við höfum með okkur þessa
9 mánuði meðgöngunnar og allar viljum við hugsa
vel um hann.Bumbufimi fyrir barnshafandi konur einstök. Hún
miðar ekki einungis að heilsu og heilbrigði móðurinnar
heldur einnig barnsins. Æfingarnar eru gerðar með sérstakri
tónlist þar sem haft er í huga velferð komandi
einstaklings, einnig eru notaðir boltar við æfingarnar
til þess að koma í veg fyrir bakverki á meðan
á æfingum stendur. Allar æfingarnar eru miðaðar
að þörfum barnshafandi kvenna þ.á.m. æfingar
til slökunar og öndunaræfingar.
Nýlegar rannsóknir sýna að leikfimi á
meðgöngu er ekki aðeins fullkomlega örugg gagnvart
móður og barni heldur hefur hún auk þess marga
kosti í för með sér.
Þar kom fram að þeim er síður hætt
við æðahnútum, bjúg, veikindum og þreytu,
náladofa, mæði og öðrum algengum fylgikvillum
meðgöngunnar.
Rannskóknin sýndi jafnframt að hríðir þeirra
eru að meðaltali halftíma styttri en kvenna sem ekki
stunda neina líkamsrækt.
Kostir þess að stunda líkamsrækt á meðgöngu
er einnig þeir að:
líkur á keisaraskurði eru minni
Ungum mæðrum er síður hætt við þunglyndi
Konur verða þrekmeiri og finna minna til á meðan
hríðum stendur
Rannsóknir hafa einnig sýnt fram á mikilvægi
hreyfingar fyrir fóstrið. Hreyfing móðurinnar
í takt við tónlist örvar barnið í
móðurkviði og það skynjar mjög sterkt
allar hreyfingar hennar og tengist henni þannig betur.
Innifalið í námskeið eru:
Æfingar 2x í viku
Fræðsluefnið
Bumbufimi dvd efnið
Brúsi
Gjafakassi frá Libero
Kennari er Krisztina